Áhugaverð fréttaskýring á amx.is: Raunir á DV – ósannindi Reynis
Á DV viðgekkst einfaldlega stefna að setja “fréttina” ofar “tillitsemi” og það hefur kostað okkur sem unnum á blaðinu ómælda erfiðleika og valdið mörgum sárindum.
Lögmaður DV, ungur lögfræðingur Gunnar Ingi Jóhannsson hdl sem virðist stunda nám í fjármálaleikfimi og sjónhverfingum viðskiptalífsins hjá Hreini Loftssyni hjá Lögmenn Höfðabakka, hefur skrifað aðstandendum sorprit.com og hótað lögreglu og skaðabótakröfu ef við birtum listann yfir auglýsendur DV.
Hinn ungi og óreyndi lögmaður virðist sammála að auglýsendur DV sýna starfsfólki og viðskiptavinum lítisvirðingu með því að auglýsa í sorpritinu DV. Lögmaðurinn gengur meira að segja svo langt að hóta málsókn verði það gert opinbert hverjir eru að styðja ritrottur DV með auglýsingum. Ef þetta eru ekki opinberar upplýsingar ætlaðar almenningi, og ef það er svona skaðlegt orðspori fyrirtækjanna að þau séu nafngreind við DV, hvers vegna eru þeir þá að dreifa þessu sorpriti um borg og bý með nöfnum þessara fyrirtækja?
DV hefur árum saman ærumeitt og ærumyrt menn og konur, lagt fólk í einelti, hefur einskis svifist, ávallt í nafni „frjálsar fjölmiðlunar“. DV hefur einnig að tilefnislausu ráðist á atvinnurekstur fólks og vegið að viðskiptunum með ómaklegri umfjöllun. DV hefur falið sig bakvið handónýta meiðyrðalöggjöf og eru dæmi um að fórnarlömb DV hafi fengið ummæli dæmd dauð og ómerk en ekki krónu í miskabætur og DV staðið uppi með gróðann af fréttasvindlinu!
DV heldur úti vef nafnleysingja, DV-malefnin.com sem er samtvinnað DV.is í forritunarkóda beggja, og þar sem ritrottur hafa fengið óhefta útrás fyrir ærumeiðingar og ofbeldishótanir gegn fórnarlömbum DV. Þetta er gengið svo langt að DV á Þorláksmessu, daginn fyrir friðarhátíð jólanna, hvatti til ofbeldis gegn stjórnmálamönnum. Sjá hér upplýsingar um þetta og áhugaverða grein.
Ritstjóri DV situr á einni stærstu frétt ársins og birtir hana ekki af tillitsemi við nafnlausan huldumann sem ætla má að sé eigandi blaðsins. Blaðamaðurinn sem flétti ofanaf þessu skrifaði grein um þetta hér.
Ofangreint hefur orðið til þess að sorprit.com fór í loftið með þeim hætti sem að þessum vef og átaki gegn DV er staðið. Vefurinn Sorprit.com er fyrsti hlutinn, næsta skref er markaðsherferðin DV-VÁLISTINN og jafnvel mótmæli í verslunum þeirra fyrirtækja sem halda áfram að auglýsa í DV.
Litla unga Grýlan hjá DV, hinn ungi og óreyndi lærisveinn Hreins Loftssonar, segir í ofangreindu bréfi sínu að rannsókn hafi staðið yfir á því hvaða aðili standi að baki sorprit.com og búið sé að finna þá aðila. Áhugavert er að þrátt fyrir að vita hver býr að baki þessu átaki kýs lögmaðurinn að ávarpa okkur með nafninu: dv@sorprit.com.
Moldvörpurnar á DV-malefnin.com féllu í gildru okkar, IP-tölu flakk sett á svið líkt kennitöluflakki svínanna og til þess eins að rugla rotturnar þeirra í ríminu. Þetta var gert með aðstoð eins þeirra sem hafa heitið fjárstuðningi við átakið og árangurinn lét ekki á sér standa. Á undraskömmum tíma var kjaftasagan um sorprit.com og IP-tölu flakkið komið á baksíðu DV sem auðvitað eins og þeirra er háttur kannaði engar alvöru staðreyndir og fór með lygasöguna í loftið. Síðan var eftirleikurinn auðveldur, sagan varð um leið mest lesna fréttin á visir.is í fleiri daga, flaug inná nær 100 bloggsíður m.a. á rottuvefinn DV-malefnin.com, og á ljóshraða til tugþúsunda Íslendinga.
Í svari við hótunarbréfinu litlu Grýlu DV sögðum við: Í sjálfu sér er það ekkert stórt leyndarmál hver stendur á bakvið fjölmiðilinn sorprit.com. Tilgangnum er náð þegar umræðan um nafnleysið hefur náð nægjanlegri athygli almennings til að vekja rækilega athygli á því hvernig DV hefur komist upp með það sjálft undanfarin ár að birta undir dulnefnum eða nafnleysi í eigin fjölmiðlum alvarlegar ærumeiðingar, upplognar sakir, rógburð og jafnvel ofbeldishótanir. Þökk sé vinnubrögðum DV hefur það gengið fram úr björtustu vonum að koma kjaftaganginum um þetta af stað. DV tók virkan þátt í því í gær.
Í tilefni jólanna, hátíð friðarins, bjóðum við DV eftirfarandi sáttartilboð:
Við samþykkjum þá tilllögu í bréfi þínu að fjarlægja allt efni af vefsíðunni sem nú er á henni og birta þar yfirlýsingu undir nafni í samræmi við þær óskir sem þú tilgreinir í bréfi þínu. En þetta samþykki er háð því að DV geri slíkt hið sama
Ekkert svar barst frá lögmanni DV!
Nú bíðum við spenntir eftir stefnu frá litlu DV Grýlunni og hlökkum til að taka lærisvein Hreins Loftssonar í bakaríið í Héraðsdómi Reykjavíkur um kennitöluflakk, nafnlaus rottuskrif og ærumeiðandi útgáfustarfsemi svo eitthvað sé nefnt, en af nógu er að taka úr verkum svínanna fyrir dóminn.