Hér eru nokkur sýnishorn af yfirlýsingum sem hafa borist frá fyrirtækjum sem hafa samúð með þjóðinni og sýna það í verki með því að hætta viðskiptum við DV:
Hættir að auglýsa í DV
Við, eins og eflaust margir aðrir, höfum lítinn áhuga á að auglýsa áfram í DV. Það liggur ljóst fyrir að traust gagnvart blaðinu hefur beðið töluverða hnekki undanfarið, ofan á þá staðreynd að auglýsingar þar ná til afskaplega fárra innan okkar markhóps. Það liggur ljóst fyrir að flestir eru sammála þér varðandi flest það sem talið er upp sem ástæða til að sniðganga blaðið. (Nafn fyrrum auglýsanda fjarlægt að beiðni fyrirtækis)